Back to search

Hólar University College

Áhrif eldgoss í Geldingadal á ferðaþjónustu í Grindavík

Abstract

dc:description.abstract

Náttúran er einstök og í raun öflugt fyrirbæri í allri sinni mynd og á Reykjanesi er að finna nokkur eldstöðvarkerfi sem minna reglulega á sig með jarðskjálftum vegna flekahreyfinga. Eftir langan aðdraganda að landrisi og jarðskjálftum í landi Grindavíkur hófst eldgos 19.mars 2021 eftir nokkur hundruð ára hlé. Eldgosið í Geldingadölum við Fagradalsfjall í Grindavík hefur vakið mikla athygli meðal almennings. Mörg þúsund manns hafa lagt leið sína að gosstöðvunum, bæði Íslendingar sem og erlendir ferðamenn. Markmið með rannsókninni var að skoða áhrif eldgossins á ferðaþjónustu í Grindavík. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við eigindlega aðferðafræði (e.qualitative methodology) og voru tekin hálf opin viðtöl (e. semi-structured interviews) við viðmælendur. Niðurstaða rannsóknarinnar byggir á viðtölum við stjórnendur fyrirtækja í ferðaþjónustu í Grindavík, starfsmanns bæjarfélagsins og viðbragðsaðila. Megin niðurstöður eru þær að eldgosið hafði jákvæð áhrif í för með sér á ferðaþjónustufyrirtæki, þá sérstaklega veitingastaði og gististaði. Þar sem áður var beitiland fyrir fé og lítið þekkt svæði bæði meðal heimafólks og ferðamanna er nú nýr áfangastaður þar sem er að finna ný runnið hraun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elva Rut Sigmarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42723
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42723

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elva Rut Sigmarsdóttir 1986-. Áhrif eldgoss í Geldingadal á ferðaþjónustu í Grindavík. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42723