Hólar University College
Sjálfbærnistefna íslenskrar ferðaþjónustu : hvernig sýna íslensk ferðaþjónustufyrirtæki þá stefnu í verki gagnvart ferðamönnum?
Abstract
dc:description.abstractÍ janúar 2019 skipaði Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið stýrihóp með aðkomu Samtaka ferðaþjónustunnar og Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem hafði það hlutverk að setja fram drög að Framtíðarsýn og leiðarljósi íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 (Stjórnarráð Íslands, e.d.). Stefnurammi verkefnisins var birtur í júní 2019, þar kemur fram að Ísland eigi að vera leiðandi þjóð á heimsvísu þegar kemur að sjálfbærri ferðaþjónustu (Samtök ferðaþjónustunnar, e.d.). Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort upplifun ferðamanna af Íslandi væri í samræmi við markmið stefnunnar þegar kemur að ferðamönnum ásamt því að rannsaka hvað íslensk ferðaþjónustufyrirtæki eru að gera til að sýna stefnu stjórnvalda í verki með því að miðla sjálfbærnisaðgerðum til ferðamanna. Spurningakönnun var lögð fyrir ferðamenn við Þingvelli og fengust alls 74 svör við könnuninni. Niðurstöður rannsóknarinnar eru í samræmi við fyrri rannsóknir á aðgerðum íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja þegar kemur að sjálfbærnis aðgerðum íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja og er útlit fyrir að mikil vinna sé fyrir höndum eigi Ísland að verða leiðandi þjóð á heimsvísu þegar kemur að sjálfbærri ferðaþjónustu. Upplifun ferðamanna af Íslandi virðist þó vera mjög jákvæð og í samræmi við framtíðarsýn ferðaþjónustunnar. Lykilorð: Sjálfbær ferðaþjónusta, þolmörk, upplifun ferðamanna, stefnumótun, stefnurammi
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gylfi Kristjánsson 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42721
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42721