Hólar University College
Ábyrg markaðssetning : breyttar áherslur í markaðssetningu áfangastaða í Fljótsdal og nágrenni
Abstract
dc:description.abstractÁskoranir ferðaþjónustu á Íslandi í gegnum árin hafa verið fjölmargar og ein af þeim er ójöfn dreifing ferðamanna um landið. Fljótsdalur á Héraði hefur að geyma einn vinsælasta áfangastað ferðamanna á Austurlandi, Hengifoss, þar sem fjöldi ferðamanna eykst ár frá ári. Þessi fjöldi ferðamanna virðist þó ekki endurspegla gestakomur annarra áfangastaða ferðamanna í Fljótsdal. Í þessari ritgerð er horft til markaðssetningar þeirra áfangastaða sem staðsettir eru í Fljótsdal og hvernig henni er háttað. Rannsóknin er megindleg þar sem tilgáta er sett fram um að markaðssetning áfangastaða í Fljótsdal skilar sér ekki í fjölgun ferðamanna á öðrum áfangastöðum en Hengifossi og þar af leiðandi þekkja ferðamenn sem stoppa þar, lítið til annarra áfangastaða á svæðinu. Gagnaöflun var gerð með spurningakönnun þar sem þýðið er ferðamenn við Hengifoss í júlí og ágúst 2020. Niðurstöður leiddu í ljós að tilgátan er að hluta til rétt, þ.e. erlendir ferðamenn þekkja lítið til annarra áfangastaða í Fljótsdal. Því er sett fram sú tillaga að breyta þurfi áherslum í markaðssetningunni, t.d. á þá leið að markaðssetja sérstaka ferðaleið sem liggur báðu megin Lagarfljóts og inn í Fljótsdal. Slíkur hringur getur fjölgað áfangastöðum, aukið þar með fjölbreytni fyrir ferðamenn og aukið stuðning á milli hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Lykilorð: ferðaþjónusta í dreifbýli, markaðsetning áfangastaða, ábyrg markaðssetning, ferðamannaleiðir, fjöl-áfangastaða líkan
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Eyjólfsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40432
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40432