Hólar University College
Áhrif nýliðaþjálfunar á starfsánægju starfsfólks gestamóttöku í ferðaþjónustu
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð verður fjallað um eigindlega rannsókn sem framkvæmd var að vori til 2021. Rannsóknin beindist að starfsfólki gestamóttöku í ferðaþjónustu þar sem kannað var hvort sú nýliðaþjálfun sem þau hlutu í upphafi starfs hefði haft áhrif á starfsánægju þeirra. Viðmælendur rannsóknarinnar svöruðu viðhorfsspurningum munnlega í viðtölum sem tekin voru af rannsakandanum um viðfangsefni rannsóknarinnar. Fræðilegur grunnur rannsóknarinnar fjallar um skilgreiningar á helstu hugtökum sem tengjast viðfangsefninu. Skoðuð voru fræðin á bakvið mannauð innan ferðaþjónustu þar sem áhersla var lögð á starfsánægju og það ferli sem á sér stað þegar nýliði hefur störf. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að nýliðaþjálfun hafi áhrif á starfsánægju starfsfólks gestamóttöku í ferðaþjónustu. Ef miðað er við svör viðmælanda spilar það lykilhlutverk hvernig tekið er á móti nýliðum og hvernig þjálfunarferlið er. Því betri móttökur og þjálfun meðal nýliða því meiri líkur eru á að starfsánægja ríki meðal starfsmanna. Óskastaða væri að niðurstöður þessar kæmu að gagni meðal ferðaþjónustufyrirtækja þegar kemur að umgjörð nýliðaþjálfunar starfsmanna og hvernig eigi að tryggja starfsánægju meðal þeirra. Lykilorð: ferðaþjónusta, stjórnun gestamóttöku, starfsánægja, móttaka nýliða, nýliðaþjálfun
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ólöf Ósk Birgisdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40020
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40020