Hólar University College
Hver er upplifun reiðhjólaferðamanna af Vestfjörðum sem áfangastað?
Abstract
dc:description.abstractReiðhjólaferðamenn eru lítill hópur ferðamanna sem lítið hefur farið fyrir í rannsóknum hér á landi. Á Vestfjörðum er talsvert minna af ferðamönnum en víðast annars staðar á landinu og þar með talsvert minni umferð. Þar er því kjörlendi fyrir reiðhjólaferðamenn eða hvað? Hér var þessi fámenni hópur ferðamanna skoðaður. 23 ferðamenn sem ferðuðust á reiðhjóli um Vestfirði 2018-2019 svöruðu spurningalista sem þeim var sendur í Word skjali með tölvupósti og sendu einnig inn mynd úr ferð sinni sem þeir töldu lýsa upplifun sinni best. Niðurstöður sýndu að þeir eru ungir að meðaltali, þeir ferðast á reiðhjóli til að tengjast náttúrunni og til að ferðast á þægilegum hraða til að missa ekki af neinu. Þeir gista í tjaldi fyrir sparnaðinn og sveigjanleikann. Væntingar þeirra voru litlar aðrar en að þar væri fallegt landslag, lítil umferð og fáir ferðamenn. Vestfirðir mæta væntingum þeirra nokkuð auðveldlega og fara fram úr væntingum sumra þó langt sé á milli tjaldstæða og matvælasölustaða. Það eina sem virðist skorta er aðgangur að viðgerðaaðstöðu eða þjónustu. Allir mæla þeir með svona ferð. Lykilorð: Reiðhjólaferðamaðurinn, áfangastaðurinn Vestfrirðir, vistvæn ferðamennska, upplifun, væntinga upplifun
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Halldóra Norðdahl 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36317
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36317