Hólar University College
Leiðarljós í mótun og hönnun upplifunar í fræðslutengdri ferðaþjónustu
Abstract
dc:description.abstractMikill fjöldi ferðamanna er farinn að skipuleggja ferðir til áfangastaða í þeim megin tilgangi að sækja fræðslu. Fræðslu sem tengist sérstöðu staðarins og samfélagsins, eða fellur að áhugamálum viðkomandi. Fjarlægðir skipta orðið minna máli en áður og fólk tilbúið að leggja töluvert á sig til að upplifa eitthvað einstakt. Fræðslutengd ferðaþjónusta er áhugaverð fyrir samfélög á jarðarsvæðum, ekki síst til að nýta innviði ferðaþjónustunnar betur. Markmið rannsóknarinnar er að dýpka fræðilegan grunn og vinna hagnýt gögn og upplýsingar sem nýst geta viðburðastjóra við mótun, hönnun upplifunar og til leggja mat á fræðslutengda ferðamennsku. Vísað er í dæmi frá Fljótsdalshéraði og úr Fljótsdal. Í rannsókninni er horft á fræðslutengda ferðaþjónustu út frá viðburðum, að því leyti að þeir eru skipulagðir og eiga sér stað á ákveðnum tíma og í ákveðnu rúmi. Þeir eru jafnframt einstakir og aldrei hægt að endurtaka þá alveg eins. Rannsóknin lýtur að þremur ólíkum viðfangsefnum er falla undir fræðslutengda ferðaþjónustu. Eigindlegum rannsóknaraðferðum er beitt til að greina viðfangsefnin út frá skipulagi og upplifun þátttakenda af þeim. Gögnin rýnd út frá kenningum og niðurstöður birtar sem ákveðin leiðarljós fyrir skipuleggjendur fræðslutengdrar ferðaþjónustu. Þar eru áherslur dregnar fram frá mótun viðburða og hönnun upplifunar að framkvæmd og mati á árangri. Samhliða voru unnin ýmis vinnuskjöl sem finna má í viðhengi sem nýst geta viðburðastjóra í tengslum við fræðslutengda ferðaþjónustu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásdís Helga Bjarnadóttir 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33973
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33973