Back to search

Hólar University College

Hér er allt í lagi! : hvernig hafa áherslur þróast í markaðsátakinu Inspired by Iceland?

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta fjallar um markaðsherferðina Inspired by Iceland. Herferðin var í fyrstu svar hagsmunaaðila ferðaþjónustunnar við þeirri neikvæðu ímynd sem skapaðist af landinu í umfjöllun í heimsfréttum eftir eldgos í Eyjafjallajökli árið 2010. Í dag er Inspired by Iceland orðið að regnhlífarheiti yfir allt það landkynningarefni sem markaðsstofa Íslands, Íslandsstofa, gefur út. Meginmarkmið verkefnisins er að komast að því hvernig áherslur í markaðsefni innan herferðarinnar hafa þróast frá því að hún hófst fyrst. Litið er á rannsóknina sem tilviksrannsókn þar sem Inspired by Iceland er tilvikið og er eigindlegum rannsóknaraðferðum á borð við skjalagreiningu og hálf-formfast viðtal beitt til að varpa ljósi á þá þróun áherslna sem hefur átt sér stað. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að nýjar áherslur hafa orðið til innan herferðarinnar í takt við fjölgun ferðamanna og atburði líðandi stundar en samhliða því er haldið áfram að vinna með þær áherslur sem fyrir voru innan átaksins. Þannig lagði fyrsta markaðsefnið innan herferðarinnar línurnar fyrir það sem kom á eftir og svo byggðist herferðin upp með hverju átakinu á fætur öðru. Lykilorð: Þróun, hagsmunaaðilar, markaðsherferðir, ferðaþjónusta, Ísland

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Brynja Eiríksdóttir 1992-
  • Ragnheiður Mjöll Baldursdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31340
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31340

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynja Eiríksdóttir 1992-; Ragnheiður Mjöll Baldursdóttir 1974-. Hér er allt í lagi! : hvernig hafa áherslur þróast í markaðsátakinu Inspired by Iceland?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31340