Back to search

Hólar University College

Áhrif aukningu í ferðaþjónustu á húsnæðismarkaðinn á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónusta á Íslandi hefur breyst töluvert á síðustu árum og hefur fjöldi ferðamanna aldrei verið meiri. Hlutfall ferðamanna miðað við íbúa á Íslandi er með því hæsta í heiminum og geta áhrif ferðaþjónustunnar því verið margvísleg. Húsnæðismarkaðurinn hefur einnig tekið miklum breytingum, bæði hvað varðar húsnæðisskort fyrir heimamenn og mikla hækkun á fasteignaverði. Í þessari rannsókn er unnin greining á fyrirliggjandi gögnum til þess að meta hver áhrif ferðaþjónustunnar eru á húsnæðismarkaðinn á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að hækkun á fasteignaverði megi rekja til húsnæðisskorts sem hefur myndast á Íslandi og til aukinnar eftirspurnar eftir íbúðum til kaups þar sem leiguverð hefur aldrei verið hærra. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa einnig til kynna að húsnæðisskort megi að hluta til rekja til aukningar á komu ferðamanna til landsins og þeirrar aukinnar eftirspurnar eftir gistiaðstöðu sem hefur myndast í kjölfarið. Hótel hafa ekki náð að anna þeirri hröðu eftirspurn sem hefur myndast á gistimarkaðinum og hefur þar af leiðandi ýtt undir aukna eftirspurn innan deilihagkerfisins. Aukinn ábati af íbúðaleigu í gegnum leigumiðlanir eins og Airbnb, hefur leitt til þess að fleiri leigusalar kjósa að leigja út íbúðir sínar til ferðamanna í skammtímaleigu sem dregur á sama tíma úr framboði á almennum húsnæðismarkaði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiðrún Harðardóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31339
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31339

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðrún Harðardóttir 1988-. Áhrif aukningu í ferðaþjónustu á húsnæðismarkaðinn á Íslandi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31339