Back to search

Hólar University College

Gæði, öryggi og áreiðanleiki : hvernig nýtist Vakinn við gerð starfsmannahandbókar?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari skýrslu er sagt frá verknámi í ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í rekstri hópferðabifreiða og er með fjölbreytta starfsemi á því sviði. Verknámið var tvíþætt, annars vegar voru margvísleg verkefni unnin vegna úttektar í tengslum við aðild fyrirtækisins að Vakanum sem er gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar á Íslandi. Hins vegar voru gerð drög að starfsmannahandbók fyrir fyrirtækið út frá gæðaviðmiðum Vakans og fræðum um sjálfbærni og þjónustugæði í ferðaþjónustu. Leitast var við að svara spurningunni um hversu vel Vakinn nýtist við gerð starfsmannahandbókar. Þátttakendur í Vakanum hafa aðgang að handleiðslu og hjálpargögnum sem leiða þá í gegnum gerð og innleiðingu á margvíslegum ferlum er varða gæða-, öryggis- og umhverfismál. Í ljós kom að Vakinn reyndist vel við ritun starfsmannahandbókar þar sem hann spannar allt það mikilvægasta sem þar þarf að koma fram. Svo virðist sem aðlögun Vakans að opinberri stefnu um ferðaþjónustu á Íslandi hafi tekist með ágætum auk þess sem gæðaviðmið hans falla vel að fræðilegum hugmyndum um þessa atvinnugrein. Lykilorð: Vakinn, gæðakerfi í ferðaþjónustu, starfsmannahandbók, sjálfbær ferðaþjónusta, öryggisáætlanir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Elín Jónasdóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31337
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31337

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Elín Jónasdóttir 1969-. Gæði, öryggi og áreiðanleiki : hvernig nýtist Vakinn við gerð starfsmannahandbókar?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31337