Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessa verkefnis er að skoða hversu mikilvægt það er að auka öryggi erlendra ferðamanna á vegum Íslands og hvaða leiðir gætu verið vænlegastar til árangurs. Til þess að upplifun ferðamanna af Íslandi sé sem best þarf ferðamönnum að finnast þeir öruggir á sínum ferðalögum. Mikil aukning hefur orðið í umferðarslysum erlendra ferðamanna undanfarin ár og því fylgir töluverður kostnaður í viðbót við tilfinningalega tjónið sem fólk upplifir í tengslum við slys. Þrátt fyrir að nokkur vitundarvakning hafi orðið meðal Íslendinga seinustu árin varðandi öryggi í umferðinni þarf að gera enn betur og átta sig á hvernig við getum undirbúið okkar erlendu gesti sem hingað koma undir það óvænta sem oft leynist við akstur um landið. Nokkuð er til af gögnum og rannsóknum sem hafa verið unnin af fagaðilum hérlendis og erlendis og voru slík fyrirliggjandi gögn greind við gerð þessa verkefnis. Helstu niðurstöður voru m.a. að mikilvægt er fyrir okkur Íslendinga að halda umferðarmannvirkjum okkar í mun betra ástandi ef við ætlum að halda landinu okkar á kortinu sem ferðamannaland. Auk þess þarf að gera átak í að bæta aðgengi erlendra ferðamanna að upplýsingum um umferðarmenningu og akstursskilyrði á íslenskum vegum. Lykilorð: Umferðarmannvirki, erlendir ferðamenn, umferðarslys, upplýsingagjöf, öryggi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hilmar Örn Kjartansson 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31336
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31336