Back to search

Hólar University College

Efnahagsleg áhrif Eyjafjallagoss á ferðaþjónustu í héraði : viðhorf heimamanna

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónusta á Íslandi hefur vaxið ört síðustu ár. Ferðamenn koma hingað að miklu leiti vegna stórbrotinnar náttúru. Náttúran er þó óútreiknanleg og getur látið á sér kræla hvenær sem er. Í þessari rannsókn er horft til eldgossins í Eyjafjallajökli 2010 og leitað eftir viðhorfi valdra hagsmunaaðila á svæðinu á efnahagslegum áhrifum gossins á ferðaþjónustu á Suðurlandi. Spurt er, eru eldgos aðdráttarafl í ferðaþjónustunni eða valda þau óvissu varðandi framtíð ferðaþjónusta á þeim svæðum sem verða hvað verst úti? Tekin voru viðtöl við aðila sem urðu fyrir áhrifum af gosinu á einhvern hátt. Viðtölin voru hálfopin sem gaf kost á umræðum og nánari svörum frá viðmælendum. Helstu niðurstöður benda til þess að ferðamenn séu tilbúnir til þess að borga fyrir og leggja meira á sig til þess að komast nær eldgosinu, jafnvel tilbúnir til þess að leggja sig í líkamlega hættu. Eyjafjallagosið hefur verið notað í markaðssetningu á svæðinu, enda var mikið fjallað um það í fjölmiðlum á meðan á gosinu stóð og einnig eftir það. Viðmælendur voru sammála því að ferðaþjónusta á svæðinu, þ.e. Rangárþing eystra hefur aukist á svæðinu og er hægt að finna ferðatengda þjónustu á næstum hverjum sveitabæ í héraðinu. Fjallað er um þau áhrif sem gosið hafði á svæðið að mati viðmælanda í viðtölum og hvernig uppbygging á ferðaþjónustu hefur verið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Gylfadóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31333
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31333

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Gylfadóttir 1980-. Efnahagsleg áhrif Eyjafjallagoss á ferðaþjónustu í héraði : viðhorf heimamanna. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31333