Hólar University College
Undirbúningur að Íslandsferð : upplýsingagjöf til erlendra ferðamanna
Abstract
dc:description.abstractÁhugi á Íslandi sem áfangastað heldur áfram að aukast. Mikilvægt er að gæta að því að upplýsingar frá ferðamálayfirvöldum sem ætlaðar eru ferðamönnum endurspegli það sem þeir hafa áhuga á að vita. Niðurstöður sýna að algengast er að ferðamenn vilji fá allar almennar upplýsingar um Ísland, einhverskonar rafrænan kynningarbækling um Ísland þar sem týnt er saman hvaða afþreying er í boði, gistimöguleikar, bílaleigur og margt fleira. Margir vilja einnig fá upplýsingabækling á pappírsformi um Ísland og eftirspurn er eftir fríu góðu vegakorti. Ferðamenn spyrja einnig mikið um vegabréf og málefni tengd þeim. Athygli vakti að lítið var spurt um einstök svæði á Íslandi en helst var spurt um hálendi Íslands og þá gönguleiðir og gistimöguleika í Landmannalaugum og nágrannasvæðum. Lítið sem ekkert er spurt um önnur landssvæði en höfuðborgarsvæðið og Suðurland, en þó er talsvert spurt um almenningssamgöngur. Mikilvægt er að halda áfram að samræma og bæta upplýsingar sem ferðamálayfirvöld beina að ferðamönnum og vinna þarf í að þýða upplýsingar frá opinberum yfirvöldum á fleiri tungumál en ensku og þýsku. Slík vinna mun skila sér í ánægðari og betur upplýstari ferðamönnum og gera Íslandsdvöl þeirra ánægjulegri. Lykilhugtök: Aðdráttarafl og ímynd áfangastaða. Skilgreining á ferðamanni og gesti. Leitarhegðun ferðamanna . Ferðaþjónusta á Íslandi
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrafnhildur Ólafsdóttir 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/27976
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/27976