Back to search

Hólar University College

Öryggisáætlanir í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi : viðhorf stjórnenda fyrirtækja í ævintýraferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Ferðamannastraumur til landsins hefur aukist gríðarlega síðustu ár og ferðamenn á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú. Mikilvægi þess að öryggi sé í hávegum haft eykst í takt við fjölgun ferðamanna, ekki síst í ævintýraferðaþjónustu þar sem áhætta og spenna eru helstu drifkraftar. Slys sem orðið hafa í greininni, aukið framboð fyrirtækja samhliða fjölgun ferðamanna sem og skortur á rannsóknum öryggistengdra mála, voru ástæða fyrir tilurð verkefnisins Öryggisáætlanir í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á stöðu öryggistengdra mála í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi. Viðhorf stjórnenda til öryggisáætlana er kannað sem og hvaða áhrif öryggisáætlanir hafa á gæði þjónustu og öryggi starfsmanna og viðskiptavina. Megindlegri rannsóknaraðferð var beitt við vinnslu rannsóknarinnar og rafræn spurningakönnun send út til 220 fyrirtækja í ævintýraferðaþjónustu hér á landi. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að meirihluti fyrirtækjanna eru með öryggisáætlun í gildi og telja að miklu máli skipti að fyrirtæki í ævintýraferðaþjónustu hafi slíka áætlun. Áberandi jákvæðni virðist ríkja meðal slíkra fyrirtækja gagnvart öryggisáætlunum og áhrifum þeirra á gæði þjónustu. Þá telja flest fyrirtækin að öryggisáætlanir stuðli einnig að auknu öryggi starfsmanna þeirra og viðskiptavina. Lykilorð: Ævintýraferðaþjónusta, slysahætta, áhætta, öryggisáætlun, viðhorf stjórnenda

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Valgerður Káradóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27973
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27973

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valgerður Káradóttir 1992-. Öryggisáætlanir í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi : viðhorf stjórnenda fyrirtækja í ævintýraferðaþjónustu. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27973