Back to search

Hólar University College

Staldraðu við : Cittaslow á Djúpavogi

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvort Cittaslow hugmyndafræðin sem Djúpivogur innleiddi árið 2013 bjóði upp á einhver tækifæri fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Cittaslow hreyfingin kemur frá Ítalíu og ákvað Djúpavogur að innleiða hreyfinguna í þeim tilgangi að auka lífsgæði heimamanna, skapa samstöðu milli bæjarbúa og leggja áherslu á verndun auðlinda, náttúru, menningu og sögu staðar. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð sem fólst í því að taka viðtöl við fimm einstaklinga sem hafa mikla þekkingu á ferðaþjónustu á Djúpavogi og Cittaslow hugmyndafræðinni. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ferðaþjónustuaðilar á Djúpavogi sjá tækifæri í Cittaslow hugmyndafræðinni og er margt þar sem mætti nýta mun betur. Viðmið Cittaslow eru skýr en upplýsa þarf ferðaþjónustuaðila betur um hvernig nýta megi hugmyndafræðina í rekstri í ferðaþjónustu. Lykilorð: Cittaslow, Slow Travel, Slow Food, sjálfbær ferðaþjónusta, ferðaþjónusta í dreifbýli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðný Stefánsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27971
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27971

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðný Stefánsdóttir 1986-. Staldraðu við : Cittaslow á Djúpavogi. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27971