Back to search

Hólar University College

Uppbygging vetrarferðaþjónustu í Ísafjarðarbæ : samgöngur, veðurfar og afþreying

Abstract

dc:description.abstract

Hið hefðbundna ferðamannatímabil hefur lengst og er vetrarferðamennska að vaxa á Íslandi með hverju árinu. Svo virðist vera að ein af ástæðum þess að aukningin færist ekki meira um landið séu samgöngur. Ísafjarðarbær er ekki undanskilinn því, en landfræðileg staðsetning hans gerir það að verkum að ekki er alltaf fært flug eða landleiðina yfir vetrartímann. Markmið þessa verkefnis var að sjá hverjar framtíðahorfur Ísafjarðarbæjar eru í uppbyggingu vetrarferðaþjónustu út frá samgöngum, veðurfari og afþreyingu. Viðfangsefnið var nálgast út frá viðhorfi ferðmannsins og tölulegar staðreyndir um samgöngur. Tekin voru viðtöl við 11 erlenda ferðamenn á svæðinu. Tölur um ófærð frá Flugfélagi Íslands og Vegagerðinni voru skoðaðar. Bornar voru saman tölur um ófærð frá Steingrímsfjarðarheiði og Öxnadalsheiði. Helstu niðurstöður voru að uppbyggin er í gangi í vetrarferðaþjónustu í Ísafjarðarbæ og framtíðahorfur góðar þó svo að veðrið stjórni miklu. Hinsvegar velta framtíðahorfurnar mikið á hvernig framvinda verður gagnvart ákvarðanatöku stjórnvalda í samgöngum. Þar kemur inn mikilvægi Dýrafjarðarganga og uppbyggingu Dynjandisheiði en í dag er einungis ein leið fær landleiðina að vetrarlagi inn í sveitarfélagið. Lykilorð: Áfangastaður – vetrarferðaþjónusta – samgöngur – veðurfar - afþreying

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnea Garðarsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25064
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25064

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnea Garðarsdóttir 1980-. Uppbygging vetrarferðaþjónustu í Ísafjarðarbæ : samgöngur, veðurfar og afþreying. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25064