Hólar University College
Afþreyingarferðaþjónusta á Íslandi : menntun stjórnenda og viðhorf þeirra til mikilvægis menntunar í greininni
Abstract
dc:description.abstractMikill vöxtur hefur verið í ferðaþjónustu síðustu ár og er ferðaþjónustan orðin ein af grunnatvinnugreinum Íslendinga. Fjöldi fyrirtækja sem bjóða upp á afþreyingu og þjónustu fyrir ferðamenn hefja rekstur á ári hverju. Fjölgun fagmenntaðra hefur ekki haldist í hendur við fjölgunferðamanna en menntun og þjálfun stjórnenda og starfsmanna er einn af lykilþáttum faglegrar uppbyggingar ferðaþjónustufyrirtækja. Markmið þessa verkefnis er að kanna menntunarstöðu stjórnenda í afþreyingarferðaþjónustufyrirtækjum á Íslandi og viðhorf þeirra til mikilvægis menntunar í greininni. Til þess að kanna þetta var send út spurningakönnun til stjórnenda í afþreyingarfyrirtækjum á Íslandi sem samanstendur af fjórtán spurningum auk þess sem stuðst var við eldri rannsóknir. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að flestir stjórnendur hafa lokið háskólaprófi eða 64%. Margir stjórnendur hafa iðnnám sem hæstu gráðu eða diplóma. Stjórnendur meta fyrri reynslu nýrra starfsmanna af störfum í faginu umfram menntun og sérþekking á borð við skyndihjálp, leiðsögumenntun, meirapróf og ýmis hagnýt námskeið vegur þyngra en háskólamenntun í ráðningarferli. Hvatinn til að efla þekkingu innan fyrirtækja í afþreyingarþjónustu er lítill en meiri fagmennska er forsenda þess að greinin njóti meiri virðingar í samfélaginu. Aðgangsþröskuldur að ferðaþjónustu er lágur og tiltölulega auðvelt er að stofna fyrirtæki í greininni og hefja rekstur eins og staðan er í dag. Til að gera ferðaþjónustu að aðlaðandi atvinnugrein fyrir metnaðarfullt vinnuafl þarf að auka kröfur til þeirra sem stofna og reka fyrirtæki í greininniog þar með styðja við jákvæða uppbyggingu til framtíðar. Lykilhugtök: afþreyingarfyrirtæki, menntunstjórnenda, menntun starfsmanna, starfsreynsla
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bryndís Fanný Halldórsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25062
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25062