Hólar University College
Eskifjörður áfangastaður fyrir skemmtiferðaskip : væntingar og viðhorf heimamanna
Abstract
dc:description.abstractÁrið 2008 ákvað hafnarstjórn Fjarðabyggðar að Eskifjörður skyldi verða markaðssettur sem áfangastaður fyrir skemmtiferðaskip. Þangað til var ekki mikið um ferðamenn í bænum og ljóst var að viðbrigðin yrðu mikil fyrir íbúa. Þessi rannsókn er gerð á viðhorfi heimafólks á Eskifirði. Til að fylgjast með breytingum á viðhorfi fólks samfara auknum ferðamannastraumi voru lagðar tvær kannanir fyrir íbúa með tveggja ára millibili. Svörin voru svo greind og sett í samhengi við áreitiskvarða Doxey og lífsferilslíkan Butlers. Upplýsingar um undirbúning og ákvarðanatöku fengust með opnum viðtölum við hafnarstjóra Fjarðabyggðar og þáverandi ferða og menningarmálafulltrúa. Megin niðurstöður voru þær að viðhorf heimamanna virðist hafa tekið breytingum á tímabilinu og væntingar aðeins dempast. Lykilorðin hér eru: Ferðaþjónusta í dreifbýli, skemmtiferðaskip, þróun ferðaþjónustu, sjálfbærni, félagsleg þolmörk
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrefna Sigríður Reynisdóttir 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25060
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25060