Hólar University College
Hagsæld og hamingja? : viðhorf heimafólks til ferðaþjónustunnar á Hvammstanga
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að kanna viðhorf heimafólks á Hvammstanga til ört vaxandi ferðaþjónustu ásamt þeim áhrifum sem hún hefur í för með sér. Megindlegri aðferðafræði var beitt við þessa rannsókn gegnum spurningakönnun meðal íbúa á Hvammstanga. Sendar voru út 432 spurningakannanir og bárust 179 svör til baka. Spurt var um viðhorf heimafólks til ferðaþjónustunnar, stjórnunar og skipulags hennar ásamt áhrifum. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að heimafólk á Hvammstanga er almennt jákvætt í garð ferðaþjónustunnar og skynjar fólk þá kosti og jákvæðu áhrif sem hún hefur í för með sér. Heimafólk setur þó út á samskiptaleysi stjórnvalda og heimafólks og telur nauðsynlegt að hugað sé að aukinni upplýsingamiðlun og auknu samstarfi. Rannsókn af þessu tagi hefur ekki verið unnin áður fyrir Hvammstanga en niðurstöður hennar ættu að nýtast sveitarstjórn Húnaþings vestra við ákvarðanatöku er lýtur að skipulagi og stefnumótun ferðaþjónustu á svæðinu. Lykilorð: Hvammstangi, viðhorf heimafólks, uppbygging og stjórnun ferðaþjónustu, þolmörk ferðaþjónustu og áhrif ferðaþjónustu
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðríður Hlín Helgudóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25056
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25056