Hólar University College
Fjölgun ferðamanna : áhrif á björgunarsveitir og upplifun þeirra
Abstract
dc:description.abstractFerðamönnum hefur fjölgað mikið síðustu ár og spáð er áframhaldandi fjölgun á næstu árum. Með þeirri fjölgun hefur einnig fjölgað útköllum hjá björgunarsveitum í Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Ferðamenn eru að koma hingað til lands allt árið um kring og hafa oft ekki þekkingu á landinu eða veðráttu hér á landi og geta því komið sér í vandræði. Byrjað var á að skoða fræðilegt efni um sjálfboðaliðastörf, ævintýraferðamennsku og starf Slysavarnarfélagsins Landsbjargar kynnt. Við rannsóknina var notuð eigindleg aðferð og tekin voru viðtöl við fimm björgunarsveitarmenn sem eiga það sameiginlegt að hafa verið í björgunarsveit í fleiri ár. Markmið viðtalanna var að komast að því hvernig björgunarsveitarmenn eru að upplifa fjölgun ferðamanna hér á landi og hvernig starf þeirra er að aukast og breytast með fjölgun ferðamanna. Niðurstöður viðtalanna leiddu í ljós að björgunarsveitarmenn finna mikið fyrir fjölgun ferðamanna og hvernig starf þeirra er að aukast. Þeir telja að upplýsingagjöf til ferðamanna hefur verið að aukast en það þurfi að gera betur til að koma í veg fyrir það að ferðamenn komi sér í vandræði er þeir ferðast á Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Díana Jóhannsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25054
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25054