Hólar University College
Andleg líðan kvenkyns starfsmanna í ferðaþjónustufyrirtækjum á Íslandi og tengsl við mikla fjölgun ferðamanna
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á það hvort og þá hvernig konur sem starfa í ferðaþjónustufyrirtækjum hérlendis upplifa hinn hraða vöxt ferðaþjónustunnar á eigin skinni. Það er, hvort ör vöxtur ferðaþjónustu á Íslandi hafi áhrif á andlega líðan kvenna í ferðaþjónustufyrirtækjum? Eigindleg rannsóknaraðferð var notuð þar sem rannsakandi spurði sex viðmælendur hálfopinna spurninga sem meðal annars vörðuðu líðan þeirra, áhrifavalda á líðan þeirra, upplifun þeirra af fjölgun ferðamanna og stjórnunarhætti innan ferðaþjónustufyrirtækjanna sem þær vinna/unnu hjá. Ekki er leitast við að alhæfa á nokkurn hátt um efnið en ályktanir og niðurstöður voru dregnar út frá stöðu þekkingar rannsakanda og viðtölunum. Helstu niðurstöður sýna að líðan kvenna hefur í sumum tilfellum versnað sökum mikils álags og streitu sem veldur svefntruflunum og lakari andlegri líðan. Töldu viðmælendur að fjölgun ferðamanna, skortur á markvissri stjórnun og „blindni” stjórnenda gagnvart ástandinu væru meðal annars orsök persónulegrar líðan þeirra auk þess sem að skortur á sterkari innviðum ferðaþjónustunnar hefðu þar áhrif. Lykilhugtök: Fjölgun ferðamanna, stjórnun, streita, andleg líðan, konur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dagbjört Þórðardóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25053
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25053