Back to search

Hólar University College

Að ganga í náttúrunni : möguleikar í þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta fjallar um göngur í náttúrunni og sjálfbæra ferðaþjónustu. Markmið þess er að leita leiða til að þetta tvennt geti þrifist saman og styrkst af samvinnunni. Rýnt er bæði í gönguna sjálfa, eðli hennar og einkenni og einnig náttúrugönguna sem birtingarmynd náttúrutengdrar og sjálfbærrar ferðaþjónustu. Jöklaleiðin sem við upphaf verkefnisins var aðeins hugmynd að gönguleið er liggja ætti meðfram suðurbrún Vatnajökuls í Austur-Skaftafellssýslu var notuð sem dæmi (e. case study). Verkefnið byggist á tveimur rannsóknum; rýnihóparannsókn og viðtalsrannsókn. Rýnihóparnir voru tveir og samanstóðu af heimamönnum annars vegar og sölufólki erlendis hins vegar og var sú rannsókn gerð við upphaf verkefnisins er gönguleiðin var einungis á hugmyndastigi. Viðtalsrannsóknin var gerð síðar, er vinna við tvo leggi leiðarinnar hafði hafist. Rætt var við þrjá hópa og samanstóð sá fyrsti af erlendu ferðafólki sem var ekki að ganga í Íslandsferð sinni, annar af erlendu ferðafólki sem var að ganga og sá þriðji af íslenskum fjallaleiðsögumönnum og ferðaskipuleggjendum. Fræðileg umfjöllun leiðir í ljós að sú gönguferðaþjónusta sem hér er til umfjöllunar fellur undir náttúrutengda ferðaþjónustu, sem bæði er hæg ævintýraferðamennska, jarðminjaferðamennska, vistvæn og með nokkrum einkennum náttúrulífsferðamennsku. Áframhaldandi uppbygging hennar þarf að hafa sjálfbærni að skilyrðislausu markmiði. Rannsóknirnar leita svara við því hvernig best sé að hanna og haga uppbyggingu Jöklaleiðarinnar. Niðurstöður þeirra varpa ljósi á ýmis atriði sem hinn breiði hópur viðmælenda telur mikilvæga og sem nýtast mega við uppbyggingu leiðarinnar og einnig við markaðssetningu hennar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún S. Sigurðardóttir 1956-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23885
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23885

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún S. Sigurðardóttir 1956-. Að ganga í náttúrunni : möguleikar í þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23885