Abstract
dc:description.abstractHöfnin á Húsavík er viðfangsefni þessarar ritgerðar. Á síðari árum hefur ferðaþjónusta aukið vægi sitt við höfnina á meðan sjávarútvegur hefur verið að dragast saman. Markmiðið er að varpa ljósi á þessa þróun, hvaða áhrif hún hefur haft á lífið við höfnina, hvaða viðhorf ólíkir aðilar hafa til þessarar þróunar og það sem er mikilvægast, hvert samspil ferðaþjónustu og sjávarútvegs við höfnina á Húsavík er. Til þess að komast að niðurstöðum verða hugtök eins og stefnumótun, ferðaþjónusta í dreifbýli, áfangastaður og sjálfbærni skoðuð og skilgreind, ásamt því verður kannað hvernig samspil fyrirtækja innan skilgreinds áfangastaðar er háttað. Einnig voru tekin viðtöl við aðila tengda sjávarútvegi og ferðaþjónustu við höfnina ásamt einum aðila sem tengist höfninni en hvorugri greininni. Eigindlegri aðferðarfræði var beitt við framkvæmd viðtalanna sem voru hálf opin. Helstu niðurstöður voru þær að aðstæður við höfnina væru ásættanlegar en plássið væri lítið. Ekki er talið langt í það að svæðið ráði ekki við frekari starfsemi þar sem flestir viðmælendur voru sammála um að hámarksnýting væri á svæðinu. Einnig töldu þeir stefnumótun ábótavant þar sem lítið samráð væri á milli aðila við höfnina ásamt því að yfirvöld hefðu ekki frumkvæði að neinu samráði á milli sín og aðila við höfnina. Lykilorð: samspil, ferðaþjónusta í dreifbýli, áfangastaður, stefnumótun, samfélagsleg sjálfbærni
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ómar Örn Hauksson 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23204
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23204