Abstract
dc:description.abstractVöxtur ferðaþjónustunnar hefur verið gríðarlegur á undanförnum árum, þar af leiðandi eykst þörfin á fræðilegri þekkingu í ferðaþjónustugreininni mikið. Skíðaferðaþjónusta er ferðaþjónustugrein sem hefur verið að skapa sér aukinn sess hér á landi. Hún hefur þó fengið litla fræðilega umfjöllun sem gerir það að verkun að erfitt getur verið að skilja hugtakið skíðaferðaþjónusta. Í þessari ritgerð er farið yfir það hvernig skíðaferðaþjónustu á Íslandi er háttað og hvert hún stefnir. Tekin voru eigindleg viðtöl við forsvarsmenn fimm mismunandi fyrirtækja innan skíðaferðaþjónustunnar hér á landi. Svör viðmælenda voru borin saman og staðan könnuð með stöðumati. Í lok ritgerðar voru styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri greind. Niðurstöður leiddu í ljós að hægt er að finna fjölbreytta skíðaferðaþjónustu hér á landi. Það er verið að gera marga góða hluti í greininni en það væri þó hægt að nýta fleiri möguleika. Þar mætti til dæmis horfa betur til þess að Íslendingar geta verið markhópur í skíðaferðaþjónstu og skíðasvæðin mættu marka sér skýrari stefnu í ferðaþjónustu. Erfitt var að greina frá því hvaða uppbygging væri á skíðaferðaþjónustumarkaðinum eftir að niðurstöður voru settar fram. Út frá rannsókninni má þó segja að helsta uppbyggingin væri sú að stefnt væri að því að betrumbæta aðstöðu gönguskíðasvæðisins við Fossavatn á Ísafirði og það ætti að koma af stað snjóframleiðslu á skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Lykilorð: Skíðaferðaþjónusta, Íþróttaferðaþjónusta, ævintýraferðaþjónusta, Stöðumat, SVÓT – greining.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Steingerður Árnadóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23203
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23203