Back to search

Hólar University College

Orðræða um ferðamál : samanburður milli áranna 2004 og 2014

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er ætlað að varpa ljósi á orðræðu um ferðamál í fjölmiðlum. Hér eru skoðaðar fréttir og greinar í tveimur íslenskum prentmiðlunum, Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Valdir voru tveir mánuðir, febrúar og júlí á árunum 2004 og 2014. Þar var leitað eftir orðunum ferðaþjónusta og ferðamál í gagnagrunnunum Tímarit.is og Fjölmiðlavaktin. Einungis voru innlendar fréttir og greinar skoðaðar. Þær voru taldar, lesnar og orðæðugreindar. Greint var hvort tónn fréttanna væri jákvæður eða neikvæður. Til að greina orðræðuna og draga fram helstu áhyggjur sem snúa að ferðaþjónustu sem birtist í prentmiðlunum var fréttunum skipt niður í þrjá flokka eftir því hvernig þeir hafa áhrif á ferðaþjónustuna. Þessir þrír flokkar eru efnahagslegir, umhverfislegir og félagslegir þættir. Þannig var hægt að varpa ljósi betur á hvar áhyggjurnar liggja. Helstu niðurstöðurnar sýna okkur að neikvæðar fréttir hefur aukist mjög mikið ef borin eru saman þessi tvö ár. Fréttir og greinar tengdum efnahagslegum og umhverfislegum þáttum bar mest á og eru áhyggjurnar mun fleiri á árinu 2014. Málefnin sem oftast var fjallað um voru tengd gjaldeyristekjum og fjárfestingu sem og náttúrupassi og gjaldtaka landeigenda á fjölsóttum ferðamannastöðum. Einnig var umfjöllun um fjölgun ferðamanna mikið rætt en lítið var komið inná þolmörk ferðamanna eða íbúa landsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elín Jónsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21642
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21642

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elín Jónsdóttir 1979-. Orðræða um ferðamál : samanburður milli áranna 2004 og 2014. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21642