Back to search

Hólar University College

Viðhorf til mikilvægis starfsþjálfunar í ferðaþjónustu : dæmi frá veitingastöðum á Húsavík

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónustan á Íslandi hefur vaxið hratt og kröfur til ferðamannastaða um að veita hágæða þjónustu leiðir til þess að ferðaþjónustuaðilar þurfa að ráða og halda í vel menntað og þjálfað fagfólk. Markmið þessa verkefnis er að kanna mikilvægi starfsþjálfunar í ferðaþjónustu og með hvaða hætti veitingastaðir á Húsavík standa að slíkri þjálfun. Til þess að kanna þetta voru tekin átta hálf opin viðtöl við starfsmenn og yfirmenn á veitingastöðum á Húsavík auk þess sem stuðst var við fræðilegar rannsóknir. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar er að erfitt er að fá fagfólk til starfa vegna fárra heilsársstarfa sem kemur til vegna stuttrar háannar úti á landi. Því er ungt fólk ráðið til starfa, oft reynslulaust skólafólk en starfstími þeirra er yfirleitt tímabundinn. Fyrir vikið má áætla að oft sé fagmennska takmörkuð í þessum geira þar sem starfsmannaveltan getur verið mikil. Þjálfun starfsmanna er fyrst og fremst óformleg, auk þess sem kröfur til umsækjenda eru litlar þar sem veitingastaðir á Húsavík telja sig ekki vera í stöðu til þess að ætlast til of mikils sökum mikillar árstíðasveiflu. Viðmælendur töldu starfsþjálfun mikilvæga en til staðar er ekki markviss þjálfun. Áhugi virðist þó vera á að auka formlega starfsþjálfun og menntun með styttri námskeiðum. Meiri fagmennska er forsenda þess að greinin njóti meiri virðingar í samfélaginu. Auka þarf kröfur til þeirra sem stofna og reka fyrirtæki í ferðaþjónustu og gera þarf greinina að aðlaðandi atvinnugrein fyrir metnaðarfullt og hæft vinnuafl.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Ósk Kristjánsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21639
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21639

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Ósk Kristjánsdóttir 1989-. Viðhorf til mikilvægis starfsþjálfunar í ferðaþjónustu : dæmi frá veitingastöðum á Húsavík. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21639