Back to search

Hólar University College

Heilsu- og vellíðunarferðaþjónusta, gjaldeyrir eða glópagull? : dæmi frá Náttúruböðum í Borgarfirði

Abstract

dc:description.abstract

Áhugi virðist vera fyrir að nýta jarðhita til uppbyggingar heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu á Íslandi. Fáir frumkvöðlar virðast hinsvegar leggja út á þá braut, þrátt fyrir að sóknarfærin virðist liggja fyrir. Verkefni þetta snýr að því kanna hvað veldur því að frumkvöðlar eiga í erfiðleikum með að koma á fót fyrirtækjum í heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu byggðum á vatni og jarðvarma. Til þess að kanna það var tilviksrannsókn gerð á dæmi að stofnun náttúrulegra jarðhitabaða í Borgarfirði þar sem rannsóknarspurning var sett fram ásamt undirspurningum. Rýnt er í hvaða auðlindir frumkvöðlar geta virkjað til að koma hugmynd af stað og hvernig má nálgast þær. Til að leita svara við rannsóknarspurningum var stuðst við fyrirliggjandi gögn ásamt öflun frumgagna. Viðtal var tekið við frumkvöðul að náttúrulegum jarðböðum í Borgarfirði, ásamt viðtali við íbúa í nágrenni til að komast að viðhorfum og væntum áhrifum af framkvæmdinni. Viðtal var einnig tekið við fulltrúa sveitarstjórnar Borgarbyggðar til að kanna aðkomu stjórnvalda. Niðurstöður benda til mikilvægis félags- og mannauðs við mótun og framkvæmd nýrra verkefna á sviði heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu, einkum þegar nýta skal auðlindir samfélags og þá sérstaklega menningararf. Jafnframt má greina hindranir er snúa að fjármögnun og framkvæmt stefnumótunnar stjórnvalda í ferðaþjónustu. Bjartsýni virðist hinvegar vera til staðar fyrir hönd verkefnisins um Náttúruböð í Borgarfirði á þessu stigi og að það gæti orðið góð viðbót við núverandi framboð ferðaþjónustu á svæðinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Ragnarsdóttir 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21634
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21634

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Ragnarsdóttir 1971-. Heilsu- og vellíðunarferðaþjónusta, gjaldeyrir eða glópagull? : dæmi frá Náttúruböðum í Borgarfirði. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21634