Hólar University College
Hálendismiðstöð að Fjallabaki : gerð hönnunarviðmiða fyrir hálendismiðstöð með sjálfbæra ferðaþjónustu að leiðarljósi
Abstract
dc:description.abstractFerðamennska hefur stóraukist á Íslandi hin síðari ár hvort heldur sem um er að ræða meðal íslenskra eða erlendra ferðamanna. Gífurlega mikil aukning hefur verið á ferðum erlendra ferðamanna hingað til lands, sérstaklega eftir eldgosið í Eyjafjallajökli 2010 og er nú búist við einni milljón erlendra ferðamanna árið 2014. Samhliða aukningu ferðamanna til landsins, þá hafa orðið breytingar á ferðahögum fólks sem vill síður ferðast í hópferðum, en hefur valið að ferðast á eigin vegum t.d. í bílaleigubílum og ráða ferðinni sjálft eða í smærri hópum. Hálendið hefur heillað og meira sótt í það en áður, samhliða auknum kröfum um betri þjónustu svo sem í gistingu, veitingum, afþreyingaferðamennsku, öryggi, gestastofum o.fl. Gistiaðstaða og þjónusta á hálendi Íslands er af skornum skammti og að mestu leyti boðið uppá gistingar í svefnpokaplássum í fjallaskálum, þar sem fjöldi fólks sefur oftast í sama herbergi og engar veitingar í boði. Hálendismiðstöðinni að Fjallabaki er ætlað að verða hönnunar- og viðmiðafyrirmynd, við gerð hálendismiðstöðva, með sjálfbæra ferðaþjónustu að leiðarljósi. Þar sem fólki gefst kostur á vali í gistingu, hvort heldur sem er í tjaldi, svefnpokum eða uppábúnum rúmum, veitingum, gestastofu, öryggisfræðslu o.fl. Miðstöðin á að vera fyrirmynd í sjálfbærni, sniðin að náttúrunni og umhverfi hennar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ágúst Helgi Rúnarsson 1957-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/21631
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/21631