Back to search

Hólar University College

„Hamingjan er hér“ : samfélagsleg áhrif Bræðslunnar á Borgarfirði eystra

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að kanna þau áhrif sem tónlistarhátíðin Bræðslan hefur haft á samfélagið á Borgarfjörð eystra þar sem hún hefur verið haldin árlega frá árinu 2005 og nýta niðurstöðurnar til að búa til betri viðburð. Í ritgerðinni er fjallað um samfélagsleg áhrif viðburða, um tónlistarhátíðir, hérlendis og erlendis og um jaðarbyggðir. Dregin er upp mynd af bakgrunni Bræðslunnar á Borgarfirði og stöðu samfélagsins þar. Beitt var aðferðum þátttökurannsókna auk þess sem framkvæmdar voru spurningakannanir meðal heimafólks á Borgarfirði og gesta hátíðarinnar. Helstu niðurstöður eru þær að Bræðslan nýtur mikils velvilja bæði hjá gestum hennar og meðal heimafólks. Hátíðin hefur haft margvísleg jákvæð áhrif á samfélagið á Borgarfirði, styrkt sjálfsmynd íbúa og styrkt efnahagslega innviði. Þá hefur hún aukið verulega sýnileika staðarins í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Þrátt fyrir að hátíðin hafi aukið bjartsýni meðal heimamanna og blásið þeim jákvæðan anda í brjóst er a.m.k. ennþá ekki hægt að fullyrða neitt um að hún muni beinlínis snúa við neikvæðri íbúaþróun á staðnum. Í rannsókninni komu fram atriði sem gestir og heimafólk sögðu betur mega fara varðandi framkvæmd hátíðarinnar. Brugðist hefur verið við flestum þessara atriða og áfram verður unnið að því að nýta niðurstöður hennar til að skapa betri viðburð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Áskell Heiðar Ásgeirsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19959
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19959

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Áskell Heiðar Ásgeirsson 1973-. „Hamingjan er hér“ : samfélagsleg áhrif Bræðslunnar á Borgarfirði eystra. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19959