Back to search

Hólar University College

Þorskar á þurru landi og þorskar í sjó hér mæla sér mót : er pláss fyrir ferðaþjónustu við hlið útgerðar í Grundarfjarðarhöfn?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á sambúð tveggja atvinnugreina í sjávarþorpi. Atvinnugreinarnar eru hinn gamalgróni sjávarútvegur og hin unga ferðaþjónusta. Sjávarþorpið sem um ræðir er Grundarfjörður á Snæfellsnesi, hjarta bæjarins slær við höfnina. Þar heilsast þessar tvær atvinnugreinar, þar fæddist sjávarþorpið og þar byggist upp framtíð samfélagsins sem nú er orðin bær, Grundarfjarðarbær. Landsbyggðin hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár, undirstöðu atvinnugreinarnar hafa orðið fyrir skerðingum og tilfærslum sem hafa komið illa niður á íbúum og samfélögum. Eigindlegri rannsókn var beitt og tekin viðtöl við aðila frá báðum atvinnugreinunum og frá bæjaryfirvöldum, fólkið var valið með tilliti til starfa þeirra og reynslu. Helstu niðurstöður voru að sjávarútvegur og ferðaþjónusta eiga vel saman og er fátt því til fyrirstöðu að höfnin og hafnarsvæðið geti ekki borið báðar atvinnugreinarnar. Niðurstaða rannsóknarinnar er því að vilji er allt sem þarf. Stjórnvöld og íbúar þurfa að starfa saman að heill byggðarlagsins á sjálfbæran hátt. Auðlindirnar eru til staðar en það þarf sterka stefnu, vilja og samvinnu til þess að byggð blómstri og samfélagið allt hafi hag af. Lykilorð: Grundarfjörður, sjávarútvegur, ferðaþjónusta, skemmtiferðaskip, sjálfbærni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Olga Sædís Aðalsteinsdóttir 1961-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19934
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19934

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Olga Sædís Aðalsteinsdóttir 1961-. Þorskar á þurru landi og þorskar í sjó hér mæla sér mót : er pláss fyrir ferðaþjónustu við hlið útgerðar í Grundarfjarðarhöfn?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19934