Abstract
dc:description.abstractSiglingar erlendra skemmtiferðaskipa í íslenskri landhelgi hefur fjölgað á undanförnum árum og fleiri hafnir hafa bæst við sem viðkomustaðir þeirra.Vegna aukinna vinsælda hefur einnig orðið töluverð fjölgun á innlendum fyrirtækjum sem bjóða upp á útsýnis- og hvalaskoðunarferðir. Mikill mannfjöldi er um borð í þessum skipum og bátum sem vekja upp spurningar um öryggi þeirra í og við hafnir hérlendis. Markmiðið með þessari rannsókn var að skoða öryggismál í starfsumhverfi skemmtiferðaskipa og útsýnisbáta. Sérstök áhersla var lögð á að kanna öryggi í og við hafnir hérlendis. Einnig var könnuð staða mála varðandi fjöldabjörgun á sjó á heimsvísu. Upplýsinga var aflað með því að skoða fyrirliggjandi gögn í rannsóknavinnu vegna ritgerðarinnar. Tekin voru hálf opin viðtöl við starfsmenn stofnanna og samtaka tengdum björgunarmálum. Niðurstöður sýna að á Íslandi eru viðbragðsaðilar meðvitaðir um áhættuna sem skapast getur við þessa auknu umferð. Viðbragðsáætlanir hafa verið gerðar og bjargir eru ágætar miðað við stærð landsins og fjölda íbúa. Við slys í köldum sjó eins og er í Íslenskri landhelgi og vegna þeirrar stærðargráðu sem slys á skemmtiferðaskipum getur orðið, er flutnings- og aðhlynningargeta innanlendra aðila ekki næg. Talsvert úrræðaleysi er á heimsvísu varðandi fjöldabjörgun á sjó meðal annars vegna fjarlægðar og aðstæðna á slysstað. Lykilorð: Fjöldabjörgun, viðbragðsáætlanir, bjargir, ábyrgðaraðilar, framkvæmdir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elsa Bergþóra Björnsdóttir 1963-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18751
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18751