Back to search

Hólar University College

Stærðarbreytileiki og mismunr í vendni flundruseiða (Platichthys flesus) á ósasvæðum umhverfis Ísland

Abstract

dc:description.abstract

Flundran er nýr landnemi við Ísland og lífshættir hennar hérlendis eru að miklu leiti óþekktir. Frekari athugana er þörf þar sem áhrif flundrunnar á vistkerfi sitt eru ekki þekkt til fullnustu. Við gerð þessarar rannsóknar var rafveitt á nokkrum ósasvæðum á Suðaustur- og Suðurlandi auk valdra svæða í Faxaflóa og Breiðafirði. Lengdardreifingar 0+ og 1+ seiða voru bornar saman milli landshluta auk þess sem horft var til stærðardreifingar hvers árgangs snemma vors og aftur þegar lengra var liðið á sumarið. Niðurstöður sýndu að 0+ seiði ganga í ósana í júní og bæði 0+ og 1+ seiði voru stærst á Suðurlandi en minnkuðu eftir því sem norðar dró. Líklega hefur ólíkur sjávarhiti á milli þessara landsvæða áhrif á vöxt og hugsanlega ganga seiðin fyrr í ósana sunnan við land en þau gera norðar. Slíkt gæti haft jákvæð áhrif á vöxt samhliða hærra hitastigi. Þar sem engin 0+ seiði veiddust á Suðausturlandi mætti leiða líkur að því að seiðin gangi síðar í ósana þar en í öðrum landshlutum.Vendni virtist einnig breytast eftir landshlutum og hlutfall vinstri vendna einstaklinga er minnst á vestur- og suðvesurlandi (Breiðafirði og Faxaflóa) en eykst svo á Suðurlandi og lækkar svo aftur á Suðausturlandi. Ekki er vitað fyrir víst af hverju þessi breytileiki stafar en hann gæti tengst mismunandi sjávarhita eftir landshlutum. Breytileiki í vendni fylgir sömu stefnu og stærðarbreytileiki 0+ og 1+ seiða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Soffía Karen Magnúsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18748
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18748

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Soffía Karen Magnúsdóttir 1987-. Stærðarbreytileiki og mismunr í vendni flundruseiða (Platichthys flesus) á ósasvæðum umhverfis Ísland. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18748