Back to search

Hólar University College

Hver er staða ferðaþjónustu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi út frá sjónarmiðum sjálfbærni ?

Abstract

dc:description.abstract

Í BA ritgerðinni leita ég svara við rannsóknarspurningunni: Hver er staða ferðaþjónustu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi út frá sjónarmiðum sjálfbærni? Markmiðið var að skoða skipulagsgögn og áætlanir sveitarstjórnar og kanna hvort hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar sé höfð að leiðarljósi í skipulagi og framkvæmd ferðaþjónustu. Skilgreind er fræðileg merking hugtaka og aðferðarfræði er varðar sjálfbæra þróun og tengsl hennar við ferðaþjónustu. Eigindlegri rannsóknaraðferð var beitt sem fólst í að lesa og greina fyrirliggjandi gögn. Þau gáfu nokkuð góða mynd af þeim markmiðum sem unnið er eftir og framtíðarsýn þar sem sem forsendur sjálfbærrar þróunar koma í auknum mæli inn sem markmið. Fræðileg gögn eru ætluð til að dýpka skilning á hugtökum og aðferðum sem sérfræðingar hafa rannsakað og ekki síður til að læra um viðurkenndar leiðir til að efla almenna samstöðu um sjálfbæra þróun í ört vaxandi ferðaþjónustu. Niðurstöður sýna að ferðaþjónusta í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er ekki umsvifamikil enda um jaðarsvæði að ræða. Almenn vitund rekstraraðila í ferðaþjónustu um mikilvægi sjálfbærrar þróunar er ekki há ef marka má netlægt kynningarefni. Sveitarstjórn hefur aukið vægi sjálfbærnisjónarmiða í skipulagsgögnum og atvinnuþróun felur í sér aukna áherslu á uppbyggingu sjálfbærrar ferðaþjónustu. Auka þarf almenna fræðslu um hugmyndafræðina til að stuðla að skilningi og innleiðingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rósa Kristín Benediktsdóttir 1965-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18747
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18747

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rósa Kristín Benediktsdóttir 1965-. Hver er staða ferðaþjónustu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi út frá sjónarmiðum sjálfbærni ?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18747