Hólar University College
Food and Fun. Árlegur matarviðburður á Íslandi : hver er upplifun og reynsla íslenskra matreiðslumanna af hátíðinni?
Abstract
dc:description.abstractÞetta verkefni fjallar um matarviðburði í ferðamennsku og hvaða áhrif þeir geta haft, með sérstakri áherslu á matarviðburðinn Food and Fun, sem haldinn er í Reykjavík árlega síðustu viku febrúarmánaðar frá árinu 2001. Farið var af stað með viðburðinn til að leita nýrra leiða til að kynna íslenskt hráefni, íslenska eldhúsið og auka útflutning á íslenskum matvælum og hráefni til matargerðar. Markmið með þessu verkefni var að fá að kynnast upplifun og reynslu íslenskra matreiðslumanna af matarhátíðinni Food and Fun. Einnig var markmið að öðlast skilning á væntingum matreiðslumeistaranna til hátíðarinnar, um hvað hátíðin snýst og hvert framhaldið á að vera. Ritgerðin byggir á eigindlegum rannsóknaraðferðum, og var rannsóknin framkvæmd í febrúar og mars árið 2014. Viðtöl voru tekin við fimm matreiðslumenn strax að lokinni hátíðinni 2014, með því skapaðist tækifæri til að meta upplifun og reynslu þeirra af hátíðinni. Lykilorð: Matarviðburður, Matarferðaþjónusta, Matreiðslumenn, Reynsla, Upplifun, Staðbundin matvæli, Food and Fun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingibjörg Sævarsdóttir 1962-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18743
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18743