Back to search

Hólar University College

Minjagripaverslun á Íslandi : er kynbundinn munur á kauphegðun ferðafólks?

Abstract

dc:description.abstract

Svo virðist sem minjagripasala á Íslandi sé í vexti og má álykta sem svo að hún haldist í hendur við vaxandi straum ferðafólks til landsins. Minjagripir hafa þó ekki notið athygli rannsakenda hér á landi í ferðamálafræðum. Erlendar rannsóknir gefa til kynna kynbundinn mun á verslun með minjagripi, sem vekur upp þá spurningu hvort að sú sé raunin hérlendis. Markmið þessarar ritgerðar er meðal annars að kanna hvort sölufólk upplifði kynbundinn mun á kauphegðun ferðafólks í minjagripaverslun á Íslandi. Unnin var eigindleg rannsókn og tekin viðtöl við sex valda einstaklinga með reynslu af minjagripaverslun. Að hljóðritun lokinni fór fram greining gagna. Rannsóknarspurningin spratt upp úr lestri erlendra fræðigreina um efnið og er svohljóðandi: „Upplifir sölufólk kynbundinn mun á kauphegðun ferðafólks í minjagripaverslun á Íslandi?“ Mikið er um að minjagripir, sérstaklega merkt smávara, sé flutt inn. Með því móti er oftast hægt að bjóða gripina á hagstæðara verði en ef þeir væru framleiddir hér á landi. Aukin eftirspurn er eftir íslenskum minjagripum sem hannaðir eru og framleiddir hérlendis. Vandaðir minjagripir með skýra tengingu við áfangastaði, sem og þeir sem vísa til þjóðmenningar og hefða, eiga vinsældum að fagna hjá sífellt fleira ferðafólki. Nauðsynlegt er, að mati viðmælenda, að Ísland sem heimsóknarland geti boðið upp á slíka gripi. Helstu rannsóknarniðurstöður eru þær að greina megi kynbundinn mun á kauphegðun ferðafólks í minjagripaverslun á Íslandi og er það í nokkrum samhljómi við erlendar rannsóknir um svipað efni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17336
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17336

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir 1964-. Minjagripaverslun á Íslandi : er kynbundinn munur á kauphegðun ferðafólks?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17336