Hólar University College
Snjallir ferðaþjónar? : eru ferðaþjónustuaðilar í Skagafirði að miðla upplýsingum til ferðamanna sem nota snjallsíma á ferðalögum sínum um Skagafjörð?
Abstract
dc:description.abstractTækninýjungar hafa haft mikil áhrif á ferðamennsku. Almenn notkun internetsins og útbreiðsla snjallsíma hafa gjörbreytt aðgengi ferðamannsins að upplýsingum og þetta hefur áhrif á upplifun og væntingar ferðamannsins, og gerir um leið nýjar kröfur til aðila í ferðaþjónustu. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvort ferðaþjónustuaðilar í Skagafirði séu í takt við nýja tíma hvað varðar upplýsingamiðlun til ferðamanna. Til að kanna þetta var eftirfarandi rannsóknarspurning sett fram: Eru ferðaþjónustuaðilar í Skagafirði að miðla upplýsingum til ferðamanna sem nota snjallsíma á ferðalögum sínum um Skagafjörð? Til þess að kanna þetta var innihaldsgreiningu beitt. Innihaldsgreining er kerfisbundin athugun á skriflegum, hljóðrænum eða myndrænum gögnum til þess að greina mynstur svo hægt sé að nota tölfræðilegan kvarða til að álykta um efni rannsóknarinnar. Í þessari rannsókn var ein heimasíða (www.visitskagafjordur.is) greind og ályktað út frá henni. Rannsóknin leiddi í ljós að skagfirskir ferðaþjónar eru ekki að nýta sér tæknina til þess að koma til móts við ferðamenn sem nota snjallsíma á ferðalögum sínum um Skagafjörð þar sem nánast ekkert efni er ætlað snjallsímum eða nýtir sér þá möguleika sem internetið hefur uppá að bjóða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arndís Berndsen 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16811
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16811