Hólar University College
Öryggismál í ferðamennsku á hálendi Íslands : öryggismál í ljósi landslagsgerðar, afþreyingar og tegundar ferðamanna
Abstract
dc:description.abstractStraumur bæði erlendra og innlendra ferðamanna inn á hálendi Íslands eykst jafnt og þétt. Náttúrutengd ferðamennska eins og fjallgöngur, náttúruskoðun og ýmis konar afþreying, tengd því landslagi sem hálendið skartar, er fjölbreytt. Í ljósi þess mikla áhuga ferðamanna á hálendinu er ekki óeðlilegt að spyrja sig hvernig öryggismálum ferðamanna sem heimsækja þetta svæði er háttað. Verkefni þetta fjallar um öryggi ferðamanna á hálendinu við Kjalveg. Gengið er út frá ákveðinni flokkun/líkani sem byggist á tengingu landslagsgerðar og tegundar ferðamanna, ferðamáta þeirra og afþreyingu. Landslagsgerðinni sem þetta verkefni nær til er lýst. Rýnt er í öryggismálin út frá þeim aðilum sem að þeim koma og hlutverki þeirra. Staða öryggismála er varðar hálendið sett í samhengi við þá flokkun sem verkefnið grundvallast á og í samhengi við könnun sem höfundur framkvæmdi í Kerlingarfjöllum sumarið 2013. Öryggismál á hálendi Íslands hafa verið ofarlega í umræðunni undanfarið. Nokkur alvarleg slys á síðustu árum hafa ýtt við þeim aðilum sem að þessari tegund ferðamennsku koma hér á landi og átak hefur verið gert á ýmsum sviðum öryggismála. Það er niðurstaða þessa verkefnis að víða er pottur brotinn og mikilvægt að gefa þessum þætti ferðamennsku á Íslandi, öryggismálunum, enn frekari gaum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hans Kristjánsson 1956-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16744
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16744