Abstract
dc:description.abstractÞar sem sífellt fleiri ferðast til Íslands og leggja leið sína í Friðland að Fjallabaki er nauðsynlegt að huga að aukinni náttúruvernd og stýringu ferðamanna til þess að hlífa viðkvæmri náttúru svæðisins. Það liggur í augum uppi að með stigvaxandi fjölda ferðamanna munu vandamál vegna ágangs þeirra aukast í friðlandinu. Helst þarf að huga að Landmannalaugum sem eru vinsælasti áfangastaður ferðamanna á hálendi Íslands og sá fjölsóttasti innan friðlandsins. Þessi aukning á ferðamönnum innan friðlandsins er þegar farin að hafa umtalsverð áhrif á svæðið. Því þarf að byggja upp innviði, bæta stýringu og auka fræðslu gesta í Landmannalaugum. Þetta þarf að gera með það að sjónarmiði að sem minnst rask verði á náttúru svæðisins en að upplifun og aðgengi ferðamanna verði bætt. Með verkefninu er ætlunin að greina hvað betur má fara og gera tillögu að aukinni fræðslu og náttúrutúlkun í Friðlandi að Fjallabaki með það að markmiði að bæta stýringu gesta og virðingu þeirra fyrir náttúrunni. Ekkert handrit er til að náttúrutúlkun fyrir landverði í Friðlandi að Fjallabaki. Í þessu verkefni verður leitað svara við því hvar er vænlegast að stunda náttúrutúlkun ásamt því að útbúa handrit að náttúrutúlkun sem landverðir í friðlandinu geta stuðst við. Lykilorð: Náttúruvernd, Landmannalaugar, Friðland að Fjallabaki, Náttúrutúlkun, Ferðamennska.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Valdimar Kristjánsson 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15161
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15161