Back to search

Hólar University College

Núpskatla : sjálfbær áfangastaður við heimskautsbaug

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta fjallar um að hefja uppbyggingu og rekstur sjálfbærrar ferðaþjónustu í Núpskötlu á Melrakkasléttu í sátt við náttúru, umhverfi og íbúa. Núpskatla er jörð í einkaeigu við Rauðanúp nyrst á Melrakkasléttu og raunar á meginlandi Íslands. Ferðamönnum sem koma í Núpskötlu hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum árum án þess að þar sé nokkur ferðaþjónusta til staðar. Hugmyndin er annars vegar að nýta umhverfið og náttúrulegt aðdráttarafl staðarins til að laða enn frekar að ferðamenn sem bera virðingu fyrir slíkum eiginleikum, veita þeim gæða þjónustu og eftirminnilega upplifun. Hins vegar að minnast rithöfundarins og ljóðskáldsins Guðmundar Magnússonar (1873-1918) sem ólst að nokkru leyti upp í Núpskötlu. Allt þetta fellur undir hugtakið geoferðaþjónusta sem þýðir ferðaþjónusta sem viðheldur eða bætir landfræðilega eiginleika áfangastaðar, það er umhverfi, menningu, fegurð, arfleifð og velferð íbúanna og leggur áherslu á sérkenni áfangastaðar og staðaranda. Greinargerð þessi á að vera leiðbeinandi um hvaða atriði þarf að hafa í huga við undirbúning og skipulagningu sjálfbærrar ferðaþjónustu. Greinargerðin ásamt viðskiptaáætluninni og fylgigögnum er grundvöllur ákvarðana um framhald verkefnisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristbjörg Sigurðardóttir 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15154
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15154

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristbjörg Sigurðardóttir 1968-. Núpskatla : sjálfbær áfangastaður við heimskautsbaug. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15154