Back to search

Hólar University College

Aðgengi fatlaðra : hagsmunamál í íslenskri ferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Mikilvægi ferðaþjónustu fyrir íslenskt efnahagslíf hefur aukist til muna undanfarin ár. Náttúra landsins er eitt helsta aðdráttaraflið og nýtur hálendi Íslands jafnmikilla vinsælda. Hálendi Íslands er viðkomustaður margra ferðamanna en helsta aðdráttarafl þess felst í fjölbreyttu landslagi og ósnortnu víðerni. Í þessari BA-ritgerð er fjallað um aðgengilega ferðaþjónustu almennt á Íslandi og aðgengi fatlaðra að hálendi Íslands. Markmiðið er að draga fram hvað er aðgengileg ferðaþjónusta og meta með hvaða hvaða hætti hægt er að bæta aðgengi fatlaðra innan íslenskrar ferðaþjónustu. Hugtakið fötlun nær yfir stóran hóp, en í þessu verkefni verður áhersla lögð á það fólk sem er með hreyfihömlun af einhverju tagi en þó notað orðið fatlaður með skilgreininguna á hreyfihömlun að leiðarljósi. Rannsóknin var unnin úr fyrirliggjandi gögnum. Niðurstöðurnar eru einkum settar í samhengi við fræði, kenningar, alþjóðasáttmála, lög og reglugerðir, enda þótt hægt sé að nálgast viðfangsefnið frá fleiri hliðum. Helstu niðurstöðurnar eru þessar: • Aðgengileg ferðaþjónusta (e.accessible tourism) er að auðvelda fólki að ferðast og upplifa ferðalög án þess að mæta hindrunum. • Aðgengi fatlaðra á ferðaþjónustu hérlendis fer batnandi. • Stjórnvöld og aðrar stofnanir eru farin að gera sér grein fyrir því að fatlaðir vilja ferðast. • Íslenskir ferðaþjónustu aðilar eru e.t.v. ekki í stakk búnir til að þjónusta fatlaða. • Hindranir má yfirstíga með auðveldum hætti. Lykilorð: Aðgengileg ferðaþjónusta, hreyfihömlun, fötlun, aðgengi, hálendi Íslands

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Hrönn Ketilsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15152
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15152

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Hrönn Ketilsdóttir 1981-. Aðgengi fatlaðra : hagsmunamál í íslenskri ferðaþjónustu. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15152