Back to search

Hólar University College

Rokkhátíðin Eistnaflug : þolmörk heimamanna

Abstract

dc:description.abstract

Vinsældir tónlistahátíða hafa aukist til muna, þeim fjölgað og umfang þeirra er meira. Þessi stækkun hefur hrint af stað umræðu um álag á vinsælustu áfangastaðina en einnig hefur komið fram áhugi á að kanna áhrif hátíðarhalda á heimamenn og þá má sérstaklega nefna þolmörk þeirra. Í þessari ritgerð er skoðað hvað hægt er að gera til þess að áhrif slíkra hátíða sé sem jákvæðust á viðhorf heimamanna og til þess að ekki sé gengið á þolmörkin. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að kanna þolmörk íbúa Neskaupstaðar gagnvart rokkhátíðinni Eistnaflugi. Kannað verður hvort heimamenn upplifi gesti vera með yfirgang og hvort pirringur eða leiðindi komi fram í samskiptum heimamanna og gesta og hvort heimamenn verði varir við aukinn sóðaskap í tengslum við hátíðina. Notast var við megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Spurningalistar voru lagðir fram til þess að auðvelda höfundi að komast að niðurstöðu og einnig var tekið viðtal við stofnanda hátíðarinnar. Aðallega var notast við áreitisskala Doxeys, lífsferlislíkan Butlers og flokkun Krippendorfs á heimamönnum. Helstu niðurstöður eru að heimamenn upplifi sig jákvæða í garð hátíðargesta, þeir eru forvitnir þegar kemur að gestum og leitast við að þjónusta þá sem best. Lykilorð: Þolmörk heimamanna, hátíðir, áfangastaður, áreitisskali og lífsferilslíkan.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erla Rán Eiríksdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15148
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15148

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erla Rán Eiríksdóttir 1990-. Rokkhátíðin Eistnaflug : þolmörk heimamanna. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15148