Hólar University College
Hvað felst í góðu aðgengi að ferðamannastöðum : umfjöllun um skilgreiningar á góðu aðgengi
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um hvað felst í góðu aðgengi að ferðamannastöðum og hvaða þættir liggja meðal annars að baki skilgreiningunni á góðu aðgengi. Til þess að nálgast viðfangsefnið voru fjórir þættir valdir sem höfundur þessarar ritgerðar taldi að varpa myndu sýn á skilgreiningu viðfangsefnis ritgerðarinnar. Þættirnir sem um ræðir eru hindrun, hönnun, stýring og upplifun með tilliti til þess sem horft er á varðandi gott aðgengi að ferðamannastöðum í hugum fólks. Valdir voru fimm einstaklingar til þátttöku í eigindlegri rannsókn um viðfangsefnið. Þau svöruðu öll tölvupósti sem sendur var til þeirra og innihélt rannsóknarspurningu ritgerðarinnar. Framkvæmd var tilviksrannsókn á tveimur velþekktum ferðamannastöðum. Niðurstöður úr þessum tveimur rannsóknum voru skoðaðar og bornar saman við fræðilegt efni ritgerðarinnar. Niðurstaða ritgerðarinnar var að uppfylla þarf ákveðin viðmið um aðgengi með tilliti til mismunandi þarfa gesta. Í ljós kom að gott aðgengi getur verið huglægt mat ferðamannsins sem byggir á mörgum og misjöfnum þáttum sem geta bæði berið huglægir og áþreifanlegir. Einnig kom í ljós að verndunarsjónarmið og uppbygging í sátt við umhverfið skiptir miklu máli við úrlausnir á málum sem snerta aðgengi. Lykilorð: aðgengi, hindranir, hönnun, stýring, upplifun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bjarni H. Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15147
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15147