Hólar University College
Samspil virkjana og ferðaþjónustu : virkjunin í Illahrauni og Bláa lónið
Abstract
dc:description.abstractNær öll ferðaþjónusta fer fram í umhverfi þar sem tækni mannsins og náttúran koma saman. Mestur hluti íslenskrar ferðaþjónustu treystir á öfl og aðdráttarafl náttúrunnar að einhverju leyti. Virkjanir nýta einnig náttúruöflin við sína framleiðslu en yfirleitt í öðrum tilgangi samanborið við nýtingu fyrirtækja innan ferðaþjónustu. Geta þessir ólíku hópar (virkjanir og ferðaþjónusta) starfað saman og nýtt sömu auðlindina í sátt og samlyndi? Markmið þessa verkefnis er að kanna hvort virkjanir og náttúra geti átt samleið er hugsað er til uppbyggingar ferðaþjónustu á Íslandi. Við leit að mögulegu svari voru virkjunin Svartsengi í Illahrauni og Bláa lónið tekin til athugunar. Fór rannsóknin fram með viðtölum sem og rýni í ljósmyndir af svæðinu. Með ljósmyndunum var lítillega athuguð ásýnd mannvirkja svæðisins og hvernig þau falla að landslaginu með tilliti til hugmyndafræðinnar um ytra landslag. Einnig var rýnt í ýmis fyrirliggjandi gögn varðandi viðfangsefnið og niðurstöður viðtala greindar út frá þeim. Hverju getur iðnaður sem byrjaði á jarðborunum skilað af sér til umhverfisins og ferðaþjónustunnar? Lykilorð: Heilsutengd ferðaþjónusta, áhrif ferðaþjónustumannvirkja á landslag, jarðhitavirkjun, Bláa lónið, viðtöl.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ása Björg Ingimarsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15146
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15146