Back to search

Hólar University College

Markaðsáætlun Hafnarfjarðar í ferðamálum : greinargerð

Abstract

dc:description.abstract

Með síauknum fjölda ferðamanna og harðnandi samkeppni um ferðamanninn er mikilvægt fyrir áfangastaði að vanda til verka við að kynna áfangastaðinn. Þetta BA verkefni snýst um að útbúa markaðsáætlun í ferðamálum fyrir Hafnarfjörð. Verkefnið skiptist í tvo hluta. Annars vegar er það greinargerð um áfangastaði, markaðssetningu og markaðsáætlanir og hins vegar er það markaðsáætlunin sjálf. Við gerð markaðsáætlunar er nauðsynlegt að greina mjög vel núverandi stöðu út frá nokkrum sjónarhornum. Það þarf að skoða markaði, markhópinn og innra og ytra umhverfi. Þá eru gerðar tillögur að aðgerðum ásamt því að leggja fram fjárhagsáætlun til þriggja ára og aðgerðaráætlun til eins árs. Megináherslan í markaðsáætluninni er að leggja aukna vigt á markaðssetningu á netinu og virkja nýtingu samfélagsmiðla. Þá er einnig lagt til að Hafnarfjarðarbær auki framlög sín til markaðsmála, fari í meira samstarf við Markaðsstofu Suðurnesja en endurskoði þátttöku sína í Höfuðborgarstofu. Markmið markaðsáætlunarinnar eru til þriggja ára og eru að fjölga erlendum ferðamönnum til Hafnarfjarðar og auka hlutfall þeirra af heildarfjölda ferðamanna til Íslands í 20%. Eins er markmiðið að fjölga meðalgistinóttum úr 3,1 í 3,6 nætur og að lokum er það að fjölga skipulögðum ferðum skemmtiferðaskipa til bæjarins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Geir Gígja 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13854
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13854

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Geir Gígja 1971-. Markaðsáætlun Hafnarfjarðar í ferðamálum : greinargerð. 2013. http://hdl.handle.net/1946/13854