Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessa verkefnis er að komast að því hvaða áhrif starfsánægja hefur á þjónustugæði og hvernig stjórnendur geta hámarkað ánægju starfsmanna í þjónustufyrirtækjum. Einnig er leitast við að varpa ljósi á það hvort sú viðleitni sé vænleg til ávinnings í formi skynjaðra þjónustugæða viðskiptavina og í formi hagnaðar fyrirtækisins. Leitað er eftir svörum í fræðum um mannauðsstjórnun og starfsmannaveltu. Hér var stuðst við greiningu fyrirliggjandi gagna, en ekki ráðist í frumrannsóknir. Fræðileg umfjöllun byggir á birtum gögnum um mannauðsstjórnun og þjónustugæði, auk þess sem efnið er tengt við íslenskar aðstæður. Helstu niðurstöður sýna að bein tengsl eru á milli mikilla innri þjónustugæða og ánægju í starfi. Ánægðir starfsmenn veita aftur betri þjónustu og eykur það ánægju viðskiptavina og hefur jákvæð áhrif á fjárhagslega afkomu fyrirtækja. Með faglegri mannauðsstjórnun, gagnkvæmri virðingu og góðum verklagsreglum og stoðkerfi er hægt að búa svo um að starfsánægja sé sem mest, en íslensk fyrirtæki eiga almennt nokkuð langt í land hvað þetta varðar. Lagðar eru fram tillögur að rannsóknum í lok þessa rits.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eydís Sigurðardóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13842
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13842