Abstract
dc:description.abstractÁrið 2008 var ákveðið var að skoða möguleika og forsendur fyrir stofnun jarðvangs (e. geopark) á Suðurlandi. Jarðvangur var síðan formlega stofnaður seint árið 2010, hlaut nafnið Katla Geopark og nær yfir landsvæði þriggja sveitarfélaga, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Meginmarkmið þessarar rannsóknar var kanna hvaða áhrif, félagslega og efnahagslega, jarðvangar hafa á það samfélag sem þeir ná yfir. Við gagnaöflun var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem notuð voru fyrirliggjandi gögn um jarðvanga og eitt opið viðtal. Mikið hefur verið skrifað um hver möguleg áhrif jarðvanga eru, en niðurstöður sýna að lítil reynsla er komin á raunveruleg áhrif jarðvanga, þar sem í flestum tilvikum eru þeir ekki mjög gamlir og fáar rannsóknir á áhrifum þeirra átt sér stað. Ák veðnar vísbendingar eru þó til staðar um áhrif, en mikið vantar upp á til að hægt sé að fullyrða hvort áhrif þeirra eru á þann veg sem lagt er upp með í starfi þeirra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Haraldsdóttir 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13399
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13399