Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni er fjallað um umferðaröryggi ferðamanna, upplýsingagjöf og bílaleigur á Íslandi. Öryggi ferðamanna í umferðinni er mikilvægt. Erlendir ferðamenn hafa lent í mörgum umferðarslysum á seinustu árum og er því mikilvægt að huga betur að þeim þáttum sem snúa að öryggi ferðamanna í umferðinni. Lítið hefur verið skrifað um umferðaröryggismál hérlendis. Rannsóknin var unnin út frá fyrirliggjandi gögnum. Tilgangur hennar var að skoða hvernig væri mögulegt að auka öryggi ferðamanna sem ferðast á bílaleigubílum á Íslandi. Skoðað er hvaða þættir hafa mest áhrif og hvert hlutverk mismunandi aðila er í þessu sambandi. Skoðuð voru gögn um umferðarslys erlendra ferðamanna á Íslandi, sem ferðast um á bílaleigubílum annars vegar og hins vegar á eigin bílum og þær bornar saman. Upplýsingagjöf bílaleiga til ferðamanna var skoðuð og hvort bílaleigurnar komi upplýsingum um umferðaröryggi til skila. Helstu niðurstöðurnar voru m.a. þær að fleiri umferðarslys verða hjá erlendum ferðamönnum sem ferðast um landið á eigin bíl heldur en bílaleigubílum. Ljóst er að viðskiptavinir bílaleiga fá meiri fræðslu varðandi þær hættur sem þeim ber að varast.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Katrín Sif Rúnarsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13395
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13395