Back to search

Hólar University College

Gestanauð eða fagnaðarfundir? : viðhorf heimafólks til samfélagslegra áhrifa ferðaþjónustu í Vopnafirði

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að kanna viðhorf heimafólks á Vopnafirði til ferðaþjónustu og hvað það telji henta best sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn.Megindlegri aðferð var beitt við rannsóknina. Þýðið er íbúar Vopnafjarðar sem þar hafa lögheimili og eru á aldrinum 18-65 ára. Sendar voru út 250 spurningakannanir til einstaklinga er valdir voru með einföldu slembiúrtaki og bárust 152 svör. Helstu niðurstöður eru þær að viðhorf heimafólks á Vopnafirði til ferðaþjónustu er mjög jákvætt og þolmörkum þeirra því ekki náð. Heimafólk vill gjarnan auka fjölda ferðamanna til svæðisins og telja atvinnugreinina mikilvæga fyrir Vopnafjörð. Skýrt kom fram að íbúar vilja fá að hafa áhrif á hvaða auðlindir samfélagsins eru nýtta r til ferðaþjónustu og hvernig. Svarendur töldu sögu og menningararfleið Vopnafjarðar bestan kosta sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Næstan töldu þeir afþreyingu tengdri náttúru. Gögnum hefur verið safnað frá staðarbúum um viðhorf þeirra til ferðaþjónustu og niðurstöðurnar varpa ljósi á hugmyndir þeirra. Þess vegna hefur verkefnið nokkra þýðingu þar sem hér er um að ræða mikilvægar upplýsingar sem nýta má sem grunn og leiðarljós við skipulagningu og stefnumótun ferðaþjónustu í Vopnafirði. Gögnin henta vel til frekari greiningar. Þannig má auka við gagnagrunn þann sem nýtist til skipulagningar ferðaþjónustu í Vopnafirði, út frá viðhorfum heimafólks.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berghildur Fanney Hauksdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13391
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13391

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berghildur Fanney Hauksdóttir 1970-. Gestanauð eða fagnaðarfundir? : viðhorf heimafólks til samfélagslegra áhrifa ferðaþjónustu í Vopnafirði. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13391