Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni verður fjallað um fyrirtæki sem stunda ferðaþjónustu í náttúru Skagafjarðar og hvort að þau fyrirtæki leggi áherslu á að stunda sjálfbæra ferðaþjónustu. Sjálfbær ferðaþjónusta byggist á ákveðinni hugmyndafræði og hefur verið notuð í stefnumótunum frá hinu opinbera. Einnig hefur hugtakið um sjálfbæra ferðaþjónustu komið víða við í námi við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Markmiðið með verkefninu er að reyna að komast að því hvort að ferðaþjónustuaðilarnir, þeir sem virkilega vinna með ferðamönnum, nýti sér hugmyndafræði sjálfbærrar ferðaþjónustu í sínum rekstri. Til að komast að þessu voru tekin viðtöl við fulltrúa allra þeirra ferðaþjónustuaðila sem stunda ferðaþjónustu í náttúru Skagafjarðar samkvæmt skilgreiningu verkefnisins. Niðurstöður viðtalanna voru greindar út frá fræðilegu efni um viðfangsefnið. Efnið var afmarkað við þau fyrirtæki sem stunda ferðaþjónustu í náttúru Skagafjarðar þar sem náttúran er helsta aðdráttarafl erle nds ferðafólks hingað til lands. Náttúran er ferðaþjónustunni því mikilvæg en jafnframt viðkvæm auðlind.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Unnur Gottsveinsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13389
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13389