Abstract
dc:description.abstractÞað er mikilvægt að vita lífþunga hrossa svo hægt sé reikna út fóðurþarfir þeirra og fóðurmagn sem þau þurfa, ákvarða lyfjaskammta og fylgjast með heilsuástandi. Hér á Íslandi er vandaðri fóðrun að færast í aukana og er því oft stuðst við fóðurkerfi sem reikna fóðurþarfir hrossa út frá lífþunga. Vönduð fóðrun hefur marga kosti, hrossið helst í stöðugra holdarfari og þyngd sem eykur bæði vellíðan hrossins og líkur á keppnisárangri. Besta leiðin til að finna lífþunga hrossa er að nota stórgripavigt en þar sem slík tæki liggja ekki á hverju strái eru til aðferðir sem reikna lífþunga útfrá skrokkmálum. Hér verður greint frá helstu aðferðunum sem notaðar eru erlendis og hvaða aðferðir og hvaða skrokkmál gefa nákvæmasta matið á lífþunga hjá 100 íslenskum reiðhrossum. Mæld voru 100 íslensk reiðhross sem voru þjálfuð af nemendum og kennurum við Hólaskóla – Háskólann á Hólum veturinn 2012. Þau voru vigtuð á stórgripavigt og tekin stangarmál og bandmál (með málbandi). Stangarmálin voru hæð á herðar og skrokklengd frá bóghnútu að setbeinshnútu og bandmálin gjarðarmál, skrokklengd frá bóghnútu að setbeinshnútu og skrokklengd frá miðlínu við bóghnútu að miðlínu við setbeinshnútu. Aðhvarfsgreining sýndi að gjarðarmál og skrokklengdin frá bóghnútu að setbeinshnútu með bandmáli skýrðu breytileika þyngdar best (70,8%) af skrokkmálunum. Notuð var formúlan (Gjarðarmál2 x Lengd)/(11877,4) til að reikna út þyngd allra hrossana. Í ljós kom að þessi formúla gaf þyngd sem var marktækt (p<0,05) ólík þyngd af stórgripavigt. Því voru fundnir nýir nefnarar annars vegar fyrir hesta (11752) og hins vegar fyrir hryssur (11893,6) þar sem hestar voru marktækt (p<0,05) þyngri en hryssurnar. Þyngdin úr formúlu aðlagaðri eftir kyni var ekki marktækt ólík þyngd af stórgripavigt og sú formúla því talin gefa nægilega nákvæmt mat á þyngd íslenskra reiðhrossa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Salbjörg Matthíasdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13299
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13299