Back to search

Hólar University College

Könnun á notkun hlaupabretta fyrir hesta á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Síðustu ár hefur færst í vöxt á Íslandi að nota hlaupabretti (hlaupabretti án vatns og vatnsbretti) við þjálfun hesta og þá sérstaklega afkastamikilla hesta. Hins vegar er lítið vitað um áhrif þjálfunarinnar á íslenska hestinn en engar rannsóknir þess efnis hafa verið birtar sérstaklega fyrir hann. Markmið verkefnisins var að kanna hvernig hestaþjálfarar á Íslandi sem hafa aðgang að hlaupabretti nýta það við þjálfun sína og hvaða þekking liggur þar að baki. Einnig að meta það líkamlega álag sem er á hestunum við slíka þjálfun. Gagnasöfnun fór þannig fram að heimsóttar voru sex tamninga- og þjálfunarstöðvar á Íslandi sem eiga og nota hlaupabretti fyrir hesta. Þar voru gerðar mælingar á líkamlegu álagi á 23 íslenskum hestum á aldrinum 4-17 vetra við þjálfun á hlaupabretti. Á meðan hver hestur var þjálfaður á hlaupabrettinu var hjartsláttartíðni hans mæld, auk þess sem hún var mæld í fimm mínútur eftir að þjálfun lauk, til að fylgjast með hvernig og hversu fljótt hesturinn jafnaði sig eftir þjálfunina. Öndunartíðni hvers hests var talin fyrir og eftir þjálfun hans á brettinu, ásamt því að líkamshiti hvers hests var mældur fyrir og eftir þjálfun hans á brettinu. Spurningalisti var lagður fyrir eiganda/þjálfara tamninga- og þjálfunarstöðvarinnar við komuna á staðinn, sem hann svaraði meðan á heimsókn stóð. Niðurstöður benda til að ekki sé mikið álag á hestum við þjálfun á hlaupabretti hérlendis. Þá virðast þjálfarar ekki vera að nýta brettin til fulls við þjálfun vegna skorts á vitneskju um hvaða áhrif það muni hafa á hestinn. Við þjálfun á brettinu leggja þjálfarar megináherslu á að hesturinn beiti sér rétt í stað þess að hann fari á sem mestan hraða. Brýnt er vegna vaxandi notkunar á hlaupabrettum við þjálfun að áhrif þeirra á íslenska hestinn verði rannsökuð. Til að þjálfarar geti notað brettið sem markvissast þurfa þeir á meiri vitneskju að halda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnhildur Anna Ragnarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13298
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13298

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnhildur Anna Ragnarsdóttir 1986-. Könnun á notkun hlaupabretta fyrir hesta á Íslandi. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13298